Matarupplifun
Gleði í Hlöðueldhúsinu

Gamla Ísland og hefðirnar

Nýja Ísland og tækifærin

Föstudagsfjör
Tilboð mars-ap 2021
Verð á mann
Kr. 15.900
Verð á mann
Kr. 22.900
Verð á mann
Kr. 12.900
Við byggjum á gömlum íslenskum grunni en notum nýtt og ferskt hráefni og leikum okkur út frá gömlum uppskriftum.
Útbúum forrétt, aðalrétt og eftirrétt.
Byrjum á að taka rúgbrauð úr ofni og smakka það á meðan við kynnumst aðstöðunni og því sem í vændum er. Síðan förum við út og náum í það grænmeti sem við viljum fá í réttina, á þeim árstímum þegar það er hægt.
Allir fá hlutverk eftir færni og áhuga. Við kynnumst sögu Þykkvabæjar og ýmsum matarhefðum héðan. Ræðum saman um mat og fáum að smakka á ýmsu góðgæti.
Hópurinn getur sest niður á barnum í hlöðunni á meðan góðgætið er að malla í ofninum.
Við vöndum okkur þannig að hver réttur verður borinn fram á fallegan hátt.
Hópurinn getur verið frá 10-16 manns.
Þetta námskeið er hægt að panta öll kvöld nema laugardagskvöld.
Valið er ferskt hráefni beint frá býli og við eldum saman nýja og spennandi rétti.
Grænmetið sem ræktað er á staðnum og kjöt úr nágrenninu verður okkur innblástur í glæsilegum réttum. Við lærum nokkur "trix" sem gera matinn ljúffengan og gera eldhússtörfin heima meira spennandi. Allt hráefni verður vel nýtt og fundnar lausnir til að ekkert fari til spillis.
Allir fá verkefni við hæfi og saman mun hópurinn skapa gómsæta og spennadi kvöldstund með fróðleik um mat og tækifærin með að nýta það hráefni sem landið okkar hefur upp á að bjóða. Síðan gæðum við okkur á góðgætinu og skálum í góðu víni ef vilji er til.
.
Hópurinn getur verið frá 10-16 manns
Þetta námskeið er hægt að panta öll kvöld.

Laugardagsgleði
Tilboð mars-ap 2021

Þykkvibær, hross og kartöfluréttir
Veturinn 2020 - 2021
Föstudagstilboð fyrir hópa 10-16 manna í Þykkvabænum
Starfsmannafélög, vinahópar, stórfjölskyldur.
Matarupplifun / námskeið í Hlöðueldhúsinu og gisting ásamt morgunverði á Hótel VOS
Matarupplifun / námskeið kr. 12.900 Gisting kr.7.500 á mann miðað við tvo í herbergi
Hvert námskeið er klæðskerasniðið fyrir hópinn þannig að allir fá verkefni eftir áhuga, getu og smekk.
Barinn í Hlöðunni verður opinn fyrir hópinn til kl. 23 ef áhugi er á því.
Föstudagsgleði
Við komu fá allir smakk og kynningu á aðstöðunni og því sem í vændum er.
Síðan er skipt í lið og hver hópur fær 2-3 verkefni /rétti til að vinna úr. Kjöt, fisk eða grænmetisréttir ásamt meðlæti verða eldaðir og í lokin mun hvert lið bera á borð glæsilega diska.
Í lokin verður borinn fram eftirréttur ala Hlöðueldhúsið.
Góðar leiðbeiningar fylgja ásamt leiðsögn og hjálparkokki.
Þetta námskeið er hægt að panta öll kvöld nema laugardagskvöld.

Smáréttir, hlaðborð og allskonar
Verð á mann
Kr. 17.900
Verð á mann
Kr. 15.900
Verð á mann
Kr. 12.900
Veturinn 2020 - 2021
Laugardagstilboð fyrir hópa 10-16 manna í Þykkvabænum
Starfsmannafélög, vinahópar, stórfjölskyldur.
Matarupplifun / námskeið í Hlöðueldhúsinu og gisting ásamt morgunverði á Hótel VOS
Matarupplifun / námskeið kr. 17.900
Gisting kr.7.500 á mann miðað við tvo í herbergi
Hvert námskeið er klæðskerasniðið fyrir hópinn þannig að allir fá verkefni eftir áhuga, getu og smekk.
Barinn í Hlöðunni verður opinn fyrir hópinn til kl. 23 ef áhugi er á því.
Laugardagsgleði
Við komu fá allir fordrykk smakk og kynningu á aðstöðunni og því sem í vændum er.
Síðan er skipt í lið og hver hópur fær 3-4 verkefni /rétti til að vinna úr. Kjöt, fisk eða grænmetisréttir ásamt meðlæti verða eldaðir og í lokin mun hvert lið bera á borð glæsilega diska.
Spennandi eftirréttur borinn fram í lokin.
Góðar leiðbeiningar fylgja ásamt leiðsögn og hjálparkokki.
Þetta námskeið er hægt að panta öll kvöld.
Unnið verður með hefðirnar í Þykkvabænum. Kartöflur og hrossakjöt hafa löngum verið tengt okkar góðu nágrönnum og munum við bjóða gestum okkar að elda veislurétti úr þessum hráefnum á ýmsan máta - grafið, nýtt, reykt og saltað. Hafa menn heyrt um "skræður" sem er sérstakur réttur frá svæðinu og búinn til úr hrossasíðu? Við munum byggja á uppskriftum og hráefni frá Þykkbæingum.
Hópurinn getur verið frá 10-16 manns.
Þetta námskeið er hægt að panta alla daga nema laugardagskvöld.
Leikið verður með íslenskt hráefni,
búnir til smáréttir sem byggja á gömlum íslenskum uppskriftum og reynum að vera svolítið frökk í að brjóta upp hefðirnar. Endar í hlaðborði sem allit setjast að.
Hópurinn getur verið frá 10-16 manns.
Þetta námskeið er hægt að panta alla daga nema laugardagskvöld.