All Videos
All Videos
Jón Magg
Guðrún Marinós
Bergþór og Albert
Hlaðan
sumar 2020
Margir hópar hafa gert sér glaðan dag í Hlöðueldhúsinu
Eldhúsið
sumar 2020
Eldhús Hlöðueldhússins er draumastaður
Svarfdælasýsl
31.05.2020
Albert eldar
30.05.2020
Albert eldar / Albert Eiríksson tók þátt í Matarupplifun í Hlöðueldhúsinu ásamt Bergþóri Pálssyni
Norðurslóð
maí 2020
Héraðsfréttablaðið Norðurslóð fylgist með norðanmönnum í brölti þeirra á Suðurlandi
Umsagnir gesta
Fallegt umhverfi - gaman fyrir hópa að taka sig svona saman, elda saman og hafa gaman, góð hópefling að taka saman verkefni og elda góðan mat og borða hann síðan í framhaldinu,
aðstaðan góð, skapast skemmtilegar umræður við matargerðina, gaman að smakka eitthvað sem maður hefur ekki smakkað áður.
Vinkvennahópurinn og makar tóku sig saman og fóru á hlöðueldhúsið að elda saman og hafa gaman. Þetta heppnaðist ótrúlega vel. Hjónin á Hlöðueldhúsinu tóku vel á móti hópnum, bæði hvað varðar veitingar, leiðbeiningar og allt mögulegt. eldað var úr frábærum hráefnum við frábærar aðstæður svo úr varð eftirminnileg og skemmtileg samvera og máltíð. Get hiklaust mælt með Hlöðueldhúsinu fyrir hópa sem vilja eiga skemmtilega en öðruvísu samverustund
Með góðri kveðju
Þórunn Sævarsdóttir
Deildarstjór LHS
Elsku hjón, takk fyrir síðast og takk kærlega fyrir að fá að taka þátt í þessari prufukeyrslu.
Eftir að hafa fylgst með þessari meðgöngu og sjá svo barnið verða til var mér sérstök ánægja eftir spennandi bið, upplifun mín fór langt fram úr væntingum. Ég ætla kannski ekki að ganga svo langt að líkja þessu við að eignast ömmubarn en…. svona eitthvað í þá áttina var tilfinningin.
Kynningin ykkar var góð og gaman að fá að heyra aðdragandann, söguna og fína myndabókin hans Hauks studdi vel við frásögnina.
Að fá þetta sérstaka smakk í byrjun var stór skemmtilegt og góð byrjun á kvöldinu.
Gaman að fá sér kannski fordrykk með smakkinu en meira vín fyrir mat er ekki æskilegt og þið hafið vafalaust ekki ætlað að hafa það þannig en erfitt var að temja og hemja þennan hóp. Engin fór sér samt að voða með hnífa né öðru svo það var vel.
Eldhúsið er einstaklega bjart og skemmtilegt og vel skipulagt. Ég veit að þið voruð ekki tilbúin með allt og eruð sjálfsagt núna að klára eitthvað af því. Þetta er draumaeldhús hvers matreiðslumanns til að elda fyrir veislur.
Salurinn er mjög flottur og einstaklega hlýlegur, þið hafið valið þannig liti að það er svo notalegt inni. Það lofar góður og hlakka ég til að sjá hann fullkláraðann
Steinþóra Sigurðardóttir
Sölustjóri - Leisure Travel. VITA